BLAUTVERKAÐUR SALTFISKUR
Einföld og þægileg matreiðsla

Fyrir neytendur sem vilja meiri þægindi og hafa ekki eins mikinn tíma til eldamennsku hafa Fiskkaup í boði léttsaltaðan frosinn fisk sem er tilbúinn til neyslu án útvötnunar.
Léttsaltaði fiskurinn frá Fiskkaupum er unninn úr fersku hráefni sem veitt er á línu af eigin bátum fyrirtækisins. Með ströngu gæðaeftirliti á öllum stigum framleiðslunnar getur fyrirtækið boðið viðskiptavinum sínum léttsaltaðan fisk sem er einstaklega bragðgóður, hvítur, þykkur og safaríkur.
Hér að neðan má sjá yfirlit um þær tegundir og stærðir sem í boði eru. Nánari upplýsingar má fá hjá sölufulltrúum Fiskkaupa.